Með hroll inn að beinum eftir göngu okkar Völu meðfram sjónum, frá Nauthólsvík og í Vesturbæinn. Hressandi. Skandall að þetta var fyrsta gangan okkar frá því í sumar þegar við gengum reglulega út að Einari Ben. Höfum samt aðeins gengið sitt í hvoru lagi. Til dæmis í gær labbaði ég í tvo tíma af því ég gat ekki hugsað mér að gera neitt annað. Skrítinn í manni hausinn stundum.
Vaknaði svo með þeim fyrstu í morgun. Labbaði í bæinn áður en birti og fékk mér morgunkaffi á Kaffitár áður en fólk mætti með tjúlluðu börnin sín. Svo gott að eiga svona rólega morgunstund. Gluggaði þar aðeins í Moggann sem ég hef ekki gert lengi. Og átti bara ekki til orð. Þetta var laugardagsblað og engin Lesbók. Hélt kannski að einhver hefði stolið henni úr en sá þá að það er búið að gera einhvern svona spes sunnudagsmogga í nýju útliti sem kemur út um leið og laugardagsblaðið (tilgangurinn hver?). Og Lesbókinn er bara aftasti parturinn af þessu blaði. Ég man þegar ég var áskrifandi fyrir nokkrum árum þá tók ég alltaf Lesbókina út og geymdi þar til síðast og las hana svona sér. Stór kostur var nefnilega að hún var sér. Ef ég væri enn þá áskrifandi væri ég líklega brjáluð yfir þessari breytingu. Sakna þess nú pínu að sitja í græna sófanum mínum (sem endaði því miður hjá Góða hirðinum í haust, vona að einhverjum líði vel í honum í dag), með rauða kaffibollann minn (sem er í kassa fyrir norðan) og lesa Lesbókina. Og drattast svo upp á Bókhlöðu.
Nú er svo komið að í raun er ekkert blað sem mig virkilega langar til að fletta. Burtséð frá he who shall not be named þarna á Mogganum, þá fannst mér blaðið betra fyrir nokkrum árum en það var í sumar. Kemur reyndar fyrir annað slagið að það eru viðtöl og greinar í Fréttablaðinu sem mig langar til að lesa en það er ekki mjög oft og þegar það gerist finnst mér umfjöllunin yfirleitt of stutt. Ég hef líka reynt að finna netmiðil sem ég nenni að lesa en er búin að gefast upp, þar ægir öllu saman og fjallar yfirleitt um spillingu og baknag um hina og þessa. Eina blaðið sem ég les alltaf núorðið er Skarpur en hann er stuttur og bara einu sinni í viku. Versta er að þetta hefur leitt til þess að ég er hálfvegis dottin útúr. Veit ekki alveg hvað er að gerast. Og þá er ég ekki að tala um stjórnmál og fjármál. Ég hef hvort sem er aldrei nennt að lesa um það. En dægurmál og menningu og hversdagslíf, góð viðtöl og metnaðarfulla umfjöllun, langar mig að lesa en finnst ég eiginlega ekki geta það. Nema kannski að einhverju leyti í Fréttablaðinu. Og kannski þessum asnalega sunnudagsmogga ef ég myndi gefa honum séns, get bara ekki hugsað mér að gefa honum séns. En mig langar ekki nógu mikið að lesa Fréttablaðið til að nenna að hlaupa niður á morgnana og sækja það til að hafa með morgunkaffinu. Ég vildi samt að það væri til blað sem lætur mig langa til að hlaupa niður og sækja það. Ég myndi meira að segja kaupa það, einu sinni fannst mér þess virði að borga fyrir Moggann. Stjáni bró segir þess virði að kaupa DV en mér finnst það aðeins of lítið og koma sjaldan og líka alltaf pínu illa við þessa fyrirsagnapólítík hjá þeim. Annars ágætis greinar þar af og til
Hana nú sagði hænan og lagðist á bakið. Veit ekki hvaðan þessi þörf fyrir að tjá mig um þetta kom en þetta bara gerðist. Ég sem ætlaði að hlífa þessari síðu við neikvæðni heimsins á nýjum tímum.
Og það er komið laugardagskvöld og ég veit ekki alveg hvað ég á að gera í því. Kannski einn julebryg. Vel gert hjá mér að kaupa þrjár kippur í fríhöfninni, halda að ég sé búin með þær og finna svo eina í geymslunni.
Segjum við þá ekki bara prost?! Og til hamingju með afmælin Margrét Helga, Fjóla Dröfn og Hákon Logi.